Þýska fótboltablaðið Kicker greinir frá því að franski kantmaðurinn, Franck Ribery sem leikið hefur með Bayern Munchen í Þýsklandi frá árinu 2017 sé á leið til Al-Sadd í Katar.
Samningur Ribery við Bayern Munchen rennur út í sumar og áður var búið að tilkynna að hann yrði ekki áfram hjá þýska stórliðinu en Frakkinn er 36 ára.
Samningur Ribery við Bayern Munchen rennur út í sumar og áður var búið að tilkynna að hann yrði ekki áfram hjá þýska stórliðinu en Frakkinn er 36 ára.
Al-Sadd endaði í toppsætinu í úrvalsdeildinni þar í landi en með liðinu leikur fyrrverandi leikmaður Barcelona og spænska landsliðsins, Xavi.
Franck Ribery hefur leikið 269 leiki með Bayern og skorað í þeim leikjum 81 mark. Á þessu tímabili hefur hann leikið 21 leik með liðinu í þýsku deildinni.
Á ferlinum hefur hann einnig leikið með Boulogne, Alés, Brest, Metz, Galatasaray og Marseille auk þess sem hann á 81 landsleik fyrir Frakka á bakinu.
Athugasemdir