Fotbolti.net
15.05.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Van Bommel til PSV (Staðfest)

Van Bommel til PSV (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Mark Van Bommel hefur gengið frá félagaskiptum sínum frá AC Milan til PSV Eindhoven og skrifað undir eins árs samning við hollenska félagið.

Þessar fréttir koma nákvæmlega ekkert á óvart en vitað var að hann var í viðræðum við PSV og mikill vilji væri til staðar af beggja hálfu til að ganga frá málum.
Þessi 35 ára öflugi miðjumaður eyddi sex árum af ferli sínum áður hjá PSV. Hann var 18 mánuði hjá Milan þar sem hann vann ítalska meistaratitilinn með liðinu.

Á opinberri heimasíðu PSV segir að þessi félagaskipti hafi verið lengi í vinnslu og loksins orðið að veruleika.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.