15.05.12 - 10:19
Magnús Már Einarsson
Nenad Zivanovic í KF (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KF úr annarri deild hefur fengið góðan liðsstyrk en Nenad Zivanovic hefur gengið til liðs við félagið.
Zivanovic þekkir vel til í íslenska boltanum en hann spilaði áður með Breiðabliki og Þór.

Þessi 35 ára gamli Serbi getur spilað allar stöður framarlega á vellinum en hann hjálpaði Þórsurum að komast upp úr fyrstu deildinni árið 2010.
Hann lék einnig með Breiðabliki við góðan orðstír frá 2006-2008 og skoraði meðal annars níu mörk í Pepsi-deildinni 2008.
Zivanovic hefur einnig leikið í Færeyjum á ferli sínum en hann var síðast á mála hjá FK Sumadija í heimalandinu.