15.05.12 - 15:10
Magnús Már Einarsson
Guðmundur Atli Steinþórsson í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

BÍ/Bolungarvík hefur fengið framherjann Guðmund Atla Steinþórsson til liðs við sig frá Ými.
Guðmundur Atli lék með yngri flokkum BÍ á sínum tíma sem og yngri flokkum HK.

Hann á að baki leiki í efstu deild með Grindavík og í næstefstu deild með Fjaraðbyggð, HK og Grindavík. Þá var hann á mála hjá KR síðari hluta sumars árið 2008.
Guðmundur Atli, sem er 24 ára, raðaði inn mörkum með KFK í þriðju deildinni árið 2010 og í fyrra skoraði hann meira en mark að meðtali í leik með Ými.
Guðmundur Atli er kominn með leikheimild með BÍ/Bolungarvík og hann gæti leikið með liðinu gegn ÍH í bikarnum á fimmtudag.