15.05.12 - 15:51
Magnús Már Einarsson
Þórir Guðjónsson í Fjölni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir úr fyrstu deild hefur fengið kantmanninn Þóri Guðjónsson á láni frá Valsmönnum.
Þórir spilaði þrjá leiki með Val í Pepsi-deildinni í fyrra áður en hann gekk til liðs við Leikni R. á láni.
Þar spilaði hann tíu leiki í fyrstu deildinni og skoraði þrjú mörk en Þórir hjálpaði Leiknismönnum að bjarga sér frá falli.
Nokkur félög höfðu áhuga á að fá Þóri í sínar raðir áður en félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti en á endanum gekk hann til liðs við Fjölni.
Þórir, sem er 21 árs, gæti leikið sinn fyrsta leik með Fjölni gegn Þór Þorlákshöfn í bikarnum á fimmtudag.