Fotbolti.net
15.05.12 - 19:00
Magnús Már Einarsson

Reynir Sandgerði fær enskan varnarmann (Staðfest)

Reynir Sandgerði fær enskan varnarmann (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

Reynir Sandgerði hefur fengið enska varnarmanninn Austin McIntosh til liðs við sig.
Þessi 24 ára gamli leikmaður var á dögunum á reynslu hjá Notts County í Englandi en hann getur leikið allar stöður í vörninni.

McIntosh hefur leikið með Mansfield Town, Ilkeston Town og Eastwood Town á Englandi sem og í Bandaríkjunum.

Reynismenn byrjuðu aðra deildina af krafti síðastliðinn föstudag þegar liðið sigraði HK 2-1 í fyrstu umferðinni.

Auk þess að fá McInthosh er miðjumaðurinn Rúnar Guðbjartsson kominn til félagsins frá Þrótti sem og varnarmaðurinn Tómas Karl Kjartansson frá Keflavík.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.