15.05.12 - 17:19
Elvar Geir Magnússon
ÍBV fær ungan miðjumann frá Millwall (Staðfest)

Magnús Gylfason þjálfari Eyjamanna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Gylfason þjálfari Eyjamanna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nítján ára enskur miðjumaður, Jake Gallagher, fær leikheimild með ÍBV frá og með morgundeginum. Hann verður því löglegur með Eyjaliðinu í fjórðu umferð en getur ekki leikið gegn KR í kvöld.
Gallagher kemur frá Millwall þar sem hann var fyrirliði unglingaliðsins. Samkvæmt heimasíðu Millwall er um að ræða baráttuglaðan leikmann sem er góður skotmaður og hefur skorað reglulega fyrir yngri lið félagsins.
Hann var kjörinn efnilegasti leikmaður Millwall 2010-11 en félagið leikur í ensku Championship-deildinni.
Fyrir hjá ÍBV er George Baldock sem hefur leikið tvo fyrstu leiki ÍBV í Peps-deildinni en hann kom á lánssamningi frá MK Dons.