15.05.12 - 17:24
Elvar Geir Magnússon
Ingimar Elí Hlynsson lánaður í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Ingimar Elí Hlynsson er genginn í raðir BÍ/Bolungarvíkur á lánssamningi frá FH. Ingimar Elí er fæddur 1992 en hann kom til FH frá KS/Leiftri 2010.
Í fyrrasumar var hann lánaður heim í KF og lék þá með liðinu í 2. deildinni en hann á tvo landsleiki með U19 liði Íslands.
Í fyrrasumar var hann lánaður heim í KF og lék þá með liðinu í 2. deildinni en hann á tvo landsleiki með U19 liði Íslands.
BÍ/Bolungarvík hefur verið að bæta við sig leikmönnum fyrir átökin framundan í 1. deildinni en liðið gerði markalaust jafntefli við Víking Reykjavík á heimavelli sínum í fyrstu umferðinni.
Sóknarmaðurinn Guðmundur Atli Steinþórsson fékk fyrr í dag félagaskipti í BÍ/Bolungarvík en þjálfari liðsins er Jörundur Áki Sveinsson.
Sóknarmaðurinn Guðmundur Atli Steinþórsson fékk fyrr í dag félagaskipti í BÍ/Bolungarvík en þjálfari liðsins er Jörundur Áki Sveinsson.
Heimild: bibol.is
