Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 15. maí 2021 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - Íslandsmeistararnir mæta Þór/KA
Breiðablik mætir Þór/KA
Breiðablik mætir Þór/KA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er nóg um að vera í íslenska boltanum í dag en spilað er í Pepsi Max-deild kvenna, Lengjudeildinni, 2. - 3. og 4. deild karla.

Nýliðar Tindastóls mæta ÍBV á Sauðárkróksvelli klukkan 13:00 á morgun. Tindastóll gat ekki spilað gegn Fylki í vikunni vegna hópsmits sem kom upp á Sauðárkróki en liðið er nú til í slaginn gegn Eyjakonum.

Valur spilar við Fylkir og Keflavík mætir Þrótti R. Breiðablik, sem tapaði gegn ÍBV í síðustu umferð, spilar þá við Þór/KA á Kópavogsvelli. Selfoss og Stjarnan eigast þá við á JÁVERK-vellinum.

Þróttur R. og Vestri mætast í Lengjudeild karla klukkan 13:00 og þá eru fimm leikir í 2. deildinni. Hægt er að sjá alla leiki dagsins hér fyrir neðan.

Pepsi-Max deild kvenna
13:00 Tindastóll-ÍBV (Sauðárkróksvöllur)
14:00 Valur-Fylkir (Origo völlurinn)
14:00 Keflavík-Þróttur R. (HS Orku völlurinn)
16:00 Breiðablik-Þór/KA (Kópavogsvöllur)
16:00 Selfoss-Stjarnan (JÁVERK-völlurinn)

Lengjudeild karla
13:00 Þróttur R.-Vestri (Eimskipsvöllurinn)

2. deild karla
14:00 Leiknir F.-Haukar (Fjarðabyggðarhöllin)
14:00 Magni-Njarðvík (Boginn)
14:00 Þróttur V.-Fjarðabyggð (Vogaídýfuvöllur)
15:00 Völsungur-ÍR (Vodafonevöllurinn Húsavík)
16:00 Reynir S.-KF (BLUE-völlurinn)

3. deild karla
13:30 Einherji-KFG (Vopnafjarðarvöllur)
14:00 ÍH-Dalvík/Reynir (Skessan)
14:00 Víðir-KFS (Nesfisk-völlurinn)
16:00 Sindri-Elliði (Sindravellir)

4. deild karla - D-riðill
14:00 Léttir-Kormákur/Hvöt (Hertz völlurinn)
14:00 Vængir Júpiters-Úlfarnir (Fjölnisvöllur - Gervigras)
14:00 Hvíti riddarinn-Vatnaliljur (Fagverksvöllurinn Varmá)
16:00 Samherjar-KB (Hrafnagilsvöllur)
Athugasemdir
banner
banner