Fotbolti.net
15.06.12 - 11:25
Magnús Már Einarsson

Michael Laudrup tekinn við Swansea (Staðfest)

Michael Laudrup tekinn við Swansea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Michael Laudrup hefur verið ráðinn stjóri Swansea en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Laudrup, sem er 48 ára Dani, tekur við Swansea af Brendan Rodgers sem tók við Liverpool fyrr í mánuðinum.
Laudrup var frábær leikmaður á sínum tíma en á ferli sínum sem þjálfari hefur hann stýrt Bröndby, Getafe, Spartak Moskvu og síðast Mallorca.

Ian Holloway, Marcel Desailly, Graeme Jones og Gus Poyet voru einnig orðaðir við Swansea en nú er ljóst að Laudrup mun taka við liðinu.

Eitt af fyrstu verkum Laudrup verður að reyna að sannfæra Gylfa Þór Sigurðsson um að ganga í raðir Swansea en félagið hefur náð samkomulagi við Hoffenheim um kaupverð á leikmanninum.

Gylfi hefur sjálfur hins vegar ekki jafnmikinn áhuga á að ganga í raðir Swansea eftir að Rodgers fór til Liverpool. Rodgers hefur sjálfur lýst yfir áhuga á að fá Gylfa til Liverpool en mál hans ættu að skýrast á næstunni.

Sonur Michael, Mads Laudrup, leikur með Stjörnunni á Íslandi en hann verður í eldlínunni þegar liðið mætir Val í kvöld.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.