15.10.04 - 12:46
Magnús Már Einarsson
Michael Duberry til Stoke (Staðfest)




Varnarmaðurinn Michael Duberry hjá Leeds hefur verið lánaður til Stoke City en bæði þessi lið leika í ensku fyrstu deildinni. Duberry mun vera í láni hjá Stoke í þrjá mánuði en kappinn varð 29 ára gamall í gær. Duberry fer beint inn í leikmannahóp Stoke fyrir leiki liðsins gegn Reading um helgian en það er aldrei að vita nema að hann fari beint inn í byrjunarliðið þar sem að Gerry Taggart er að taka út þriggja leikja bann og Clive Clark fyrirliði Stoke tekur út eins leiks bann gegn Reading.
