Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. október 2021 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
White vill vera kallaður Benjamin og horfir lítið á fótbolta
Benjamin White
Benjamin White
Mynd: Getty Images
Benjamin White, miðvörður Arsenal, er hrifnari af Benjamin en styttingunni Ben. Benjamin ræddi við Sky Sports fyrir leik Arsenal og Crystal Palace á mánudag.

Hann spilar í treyju númer fjögur sem er sama treyja og Patrick Vieira lék í á sínum tíma en Benjamin segist lítið vita um franska miðjumanninn. Hann segist ekki hafa horft á fótbolta þegar hann var yngri.

„Þið megið kalla mig það sem þið viljið, ég mögulega svara samt ekki," grínaðist Benjamin.

„Ég fylgist vel með því hvað ég geri og horfi á sjálfan mig spila til að rýna í hvað ég get bætt. Ég horfi stundum á enska landsliðið en ég myndi ekki setjast niður og horfa bara á einhvern leik," sagði þessi miðvörður Arsenal.

„Ég horfði ekki á fótbolta þegar ég var yngri og þess vegna þekki ég ekki eldri leikmenn eins og Vieira þó ég viti að hann var mjög góður leikmaður," sagði White.
Athugasemdir
banner
banner
banner