16.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Fulham kaupir Volz (Staðfest)




Fulham hefur gengið frá kaupum á varnarmanninum Moritz Volz frá Arsenal. Þessi tvítugi Þjóðverji hefur verið í láni hjá Fulham á þessari leiktíð og staðið sig svo vel að Chris Coleman stjóri liðsins ákvað að kaupa kappann en kaupverðið fékkst ekki uppgefið. Volz sem kom til Arsenal frá Schalke árið 1999 hefur skrifað undir samning við Fulham til ársins 2007.
