Fotbolti.net
16.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Andri Steinn í Fram (Staðfest)

Andri Steinn í Fram (Staðfest)
Canon
Andri Steinn Birgisson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Fram en þetta kemur fram á heimasíðu liðsins. Miðjumaðurinn Andri Steinn kemur frá Fylki en hann náði ekki að festa sig í sessi hjá Árbæjarliðinu. Andri Steinn var lánaður til Aftureldingar síðastliðið sumar og lék hann tíu leiki með Mosfellingum og skoraði í þeim eitt mark. Andri Steinn sem varð tvítugur í desember síðastliðnum fór í haust til Barnsley liðs Guðjóns Þórðarsonar og var þar til reynslu en strákurinn þykir efnilegur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.