16.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
West Ham fær Shaaban á láni (Staðfest)




West Ham United hefur fengið markvörðinn Rami Shaaban frá Arsenal á láni í einn mánuð. West Ham hefur verið að leita að markmanni síðan að liðið seldi David James til Manchester City á miðvikudaginn. Rætt hefur verið um að landsliðsmarkvörðurinn Árni Gautur Arason sem er núna til reynslu hjá Manchester City sé á leið til West Ham og gæti það alveg gerst því eins og fyrr segir er lánssamningur Shaaban bara í einn mánuð.
