16.01.04 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Árni Gautur Arason til Man City (Staðfest)




Árni Gautur Arason landsliðsmarkvörður Íslendinga skrifaði í morgun undir samning við Manchester City og mun því vera hjá félaginu út tímabilið. Samningurinn verður aðeins út þessa leiktíð en svo ætlar Árni að sjá til hvað hann gerir í framhaldinu. Árni verður varamarkvörður hjá City á eftir David James landsliðsmarkverði Englendinga sem gekk í raðir félagsins fyrr í vikunni en þó má búast við að Árni fái að spila, til að mynda bikarleiki þar sem James má ekki spila í bikarnum því hann hefur spilað í þeirri keppni með West Ham. Árni Gautur verður löglegur með City um helgina en þó er ólíklegt að hann verði í leikmannahópnum þar sem hann er enn að ná sér af meiðslum.
