Fotbolti.net
16.01.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Enn kvarnast úr hjá HK/Víkingi - Nína Björk í Aftureldingu (Staðfest)

Nína Björk í leik gegn Aftureldingu.

Nína Björk í leik gegn Aftureldingu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Markvörðurinn Nína Björk Gísladóttir er farin frá HK/Víkingi og gengin í raðir Aftureldingar. HK/Víkingur hefur misst fjölda sterkra leikmanna á síðustu dögum. Sonný Lára Þráinsdóttir lék í marki sameiginlegs liðs Aftureldingar/Fjölnis síðasta sumar en er farin til Hauka.
Nína Björk er 19 ára gömul. Hún hóf meistaraflokksferil sinn hjá ÍBV árið 2005 er hún lék einn leik í efstu deild og annan í meistarakeppni KSÍ.

Þaðan fór hún til Stjörnunnar þar sem hún spilaði ekki með meistaraflokki.Sumarið 2007 hóf hún að leika með HK/Víking og hefur átt fast sæti í marki liðsins.

Hún hefur leikið 41 leik í deild og bikar fyrir liðið en á einnig að baki tvo leiki fyrir U19 ára landslið Íslands og 3 fyrir U17 ára liðið.

HK/Víkingur féll úr efstu deild sumarið 2008 og hafði gert sér vonir um að fara beint aftur upp síðasta haust. Það gekk ekki eftir og í kjölfarið hefur liðið nú þurft að sjá sex sterkum leikmönnum.

Þórhildur Stefánsdóttir fór í Hauka, Berglind Bjarnadóttir í Val og Ellen Bjarnadóttir systir hennar í KR. Lára Hafliðadóttir fór einnig í KR og markahæsti leikmaður liðsins, Íris Dóra Snorradóttir fór í Fylki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.