16.01.10 - 09:41
Hafliði Breiðfjörð
Samuel Galindo til Arsenal (Staðfest)

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal.

Mynd: Getty Images

Samuel Galindo miðjumaður landsliðs Bólivíu er genginn í raðir Arsenal frá Real America en kaupverðið var ekki gefið upp.
Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal ætlar að senda þennan 17 ára gamla leikmann strax aftur frá félaginu á láni eins og hann gerði eitt sinn með Mexíkóann Carlos Vela.
,,Galindo hefur góða tækni, hann er klár, 185 cm á hæð, vinstri fótar og með mikið þol,\" sagði Wenger.
,,Hann spilar á miðri miðjunni og getur sent góða bolta. Hann hefur góðan leikskilning líka sem okkur líkar vel.\"
Galindo var talinn vera að fara til Everton í desember en valdi að fara til Arsenal í staðinn eftir að hafa verið þar á reynslu.
,,Það er rétt, hann var hjá Arsenal en var boðið að koma til mín á reynslu,\" sagði Wenger. ,,Ég sagði já, mér líkaði það sem ég sá og ég samdi við hann. Ég ætla að senda hann frá okkur á láni. Við erum með nokkur félög í huga.\"

Heimild: BBC