Alfreð Finnbogason fær vonandi mínútur hjá Augsburg í dag sem spilar við Werder Bremen á útivelli í þýska boltanum.
Alls eru sex leikir á dagskrá yfir daginn í Þýskalandi en allir fara þeir fram klukkan 14:30 fyrir utan viðureign Stuttgart og Gladbach.
Dortmund á leik á sama tíma og Alfreð og félagar en ætlast er til sigurs gegn Mainz á heimavelli.
Dortmund þarf á sigri að halda í toppbaráttunni en liðið er nú þegar fimm stigum á eftir toppliði Bayern Munchen.
Hér má sjá dagskrá dagsins.
Laugardagur:
14:30 Wolfsburg - RB Leipzig
14:30 Werder Bremen - Augsburg
14:30 Köln - Hertha
14:30 Hoffenheim - Arminia Bielefeld
14:30 Dortmund - Mainz
17:30 Stuttgart - Gladbach
Athugasemdir