Fotbolti.net
16.05.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Jón Orri og Sigurður Donys í Einherja (Staðfest)

Jón Orri og Sigurður Donys í Einherja (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Einherij frá Vopnafirði hefur fengið Jón Orra Ólafsson og Sigurð Donys Sigurðsson til liðs við sig.

Jón Orri hefur leikið með Frömurum í Pepsi-deildinni undanfarin ár en hann ákvað í vetur að taka sér frí frá knattspyrnuiðkunn.

Sigurður Donys var fastamaður í liði Hattar sem fór upp úr annarri deildinni í fyrra en hann hefur nú gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Einherja á láni.
David Hannah mun þjálfa Einherja líkt og í fyrra en félagið er einnig með fjóra skoska leikmenn innan sinna raða.

Keppni í þriðju deildinni hefst um næstu helgi en Einherij mætir KH í fyrsta leik á sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.