Fotbolti.net
16.05.12 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Ritchie De Laet til Leicester (Staðfest)

Ritchie De Laet.

Ritchie De Laet.

Canon

Mynd: Getty Images

Leicester hefur keypt varnarmanninn Ritchie De Laet og miðjumanninn Matthew James frá Manchester United.

Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en báðir leikmennirnir skrifuðu undir þriggja ára samning við Leicster.
Hinn 23 ára gamli De Laet lék sex byrjunarliðsleiki á ferli sínum með Manchester United en hann fór oft frá félaginu á láni.

Í vetur var hinn belgíski De Laet meðal annars í láni hjá Norwich City í ensku úrvalsdeildinni.

James, sem getur líka leikið í vörninni, hefur tvívegis verið á láni hjá Preston North End.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.