Fotbolti.net
16.06.04 - 06:59
Magnús Már Einarsson

Tarnat til Hannover (Staðfest)

Michael Tarnat í baráttu við James Beattie.

Michael Tarnat í baráttu við James Beattie.

Canon
Þjóðverjinn Michael Tarnat hefur snúið aftur í þýsku Bundesliguna og gengið til liðs við Hannover 96. Tarnat sem að er 34 ára vinstri bakvörður hefur skrifað undir tveggja ára samning við Hannover en þaðan kemur hann frítt frá Manchester City.
Tarnat lék með Manchester City á nýliðnu tímabili en Kevin Keegan bauð honum ekki endurnýjun á eins árs samningi sem að Tarnat gekk frá síðastliðið haust þegar að hann kom til City frá Bayern Munchen.

Hjá Hannover á Tarnat að fylla skarð vinstrifótar mannanna Markus Schuler og Kleber sem að fara frá félaginu í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.