Fotbolti.net
16.06.12 - 22:30
Brynjar Ingi Erluson

Franciszek Smuda hættur með Pólland (Staðfest)

Franciszek Smuda

Franciszek Smuda

Canon

Mynd: Getty Images

Powerade
Franciszek Smuda, þjálfari Póllands, hefur ákveðið að segja þetta gott og hefur ákveðið að hætta með pólska liðið.
Pólland, sem hélt Evrópumótið ásamt Úkraínu í ár, féll úr keppni í kvöld í A-riðlinum eftir að hafa tapað fyrir Tékklandi 0-1. Liðið náði þó jafntefli gegn bæði Rússlandi og Grikklandi.

Franciszek Smuda er hættur með pólska liðið núna, en hann tók við því árið 2009 og rennur samningur hans út eftir mótið. Hann staðfesti það í kvöld að hann hætti með liðið eftir mót.

,,Þetta er 100 prósent endirinn hjá mér. Samningur minn rennur út í lok móts. Takk öll sömul,\" sagði Smuda.

,,Við gerðum okkar besta. Því miður þá var allt of mikið af feilsendingum og í síðari hálfleik urðum við að berjast á fullu til þess að ná einhverju úr leiknum,\" sagði hann að lokum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.