Fotbolti.net
16.06.12 - 23:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Gennaro Gattuso til Sion (Staðfest)

Gennaro Gattuso til Sion (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Gennaro Ivan Gattuso hefur skrifað undir tveggja ára samning við svissneska liðið FC Sion.
Gattuso, sem er 34 ára gamall, var leystur undan samning sínum hjá AC Milan í sumar, en hann hafði leikið með liðinu í 13 ár og unnið nánast allt sem hægt er að vinna.

Hann hafði verið sterklega orðaður við sitt gamla félag, Glasgow Rangers í Skotlandi, en út af fjárhagsaðstæðum þá gengu samningar ekki upp og ákvað Gattuso því að ganga til liðs við Sion í Sviss, en hann var kynntur sem leikmaður félagsins í gær.

Hann gerði tveggja ára samning við félagið, en haft er eftir félaginu að það ætli að byggja liðið í kringum hann. Alessandro Del Piero, sem yfirgefur þá Juventus í sumar, hefur þá einnig verið sterklega orðaður við Sion.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.