Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 16. júní 2021 09:00
Victor Pálsson
Ekki hægt að dæma enska landsliðið strax
Mynd: Getty Images
Það er ekki hægt að dæma enska landsliðið á EM fyrr en liðið spilar við eina af stóru strákum mótsins.

Þetta segir Wayne Rooney, markahæsti leikmaður í sögu Englands, fyrir leik gegn Skotlandi á föstudag.

England vann fyrsta leik sinn á mótinu 1-0 gegn Króatíu og spilar svo við Skotland á föstudag.

„Þeir eiga erfiðan leik framundan gegn Skotlandi á föstudaginn," sagði Rooney.

„Eftir að hafa unnið leikinn gegn Króatíu komast þeir pottþétt þægilega í næstu umferð. Við þurfum að horfa á þá gegn Spáni, Frökkum, Portúgölum eða Belgum. Þá gæti þetta orðið erfitt."

„Það vantar reynslu í þennan hóp en það er nóg um gæði."
Athugasemdir
banner
banner
banner