16.07.04 - 09:07
Hafliði Breiðfjörð
Árni Gautur til Vålerenga (Staðfest)




Árni Gautur Arason landsliðsmarkvörður Íslands gekk í dag í raðir Vålerenga í Noregi og mun leika með liðinu út tímabilið 2007. Árni hefur leikið í Noregi með meisturum Rosenborg undanfarin ár að síðasta tímabili undanskildu er hann lék með Manchester City. Hann verður klár í slaginn 26. júlí næstkomandi þegar Vålerenga mætir Lyn. Hjá Vålerenga leysir árni stöðu Pa Dembo Touray sem nýlega gekk í raðir Djurgården í Svíþjóð og mun leika það með Sölva Geir Ottesen.
Árni sjálfur er enn hér á Íslandi en umboðsmaður hans, Kjetil Osvold, sá um að ganga frá samningum við norska félagið. Árni átti í símaviðræðum við félagið í gær þar sem hann samþykkti samninginn.
Árni sagðist í samtali við Verdens Gang vera ánægður með samninginn en önnur félög voru einnig í myndinni og taldi Árni Vålerenga vera besta kostinn.
Árni sagðist í samtali við Verdens Gang vera ánægður með samninginn en önnur félög voru einnig í myndinni og taldi Árni Vålerenga vera besta kostinn.
