16.07.04 - 16:48
Hafliði Breiðfjörð
Nardiello til Barnsley (Staðfest)




Daneil Nardiello, 21 árs gamall framherji Manchester United mun leika með Barnsley alla næstu leiktíð en frá þessu var gengið í dag. Guðjón Þórðarson fékk Nardiello til félagsins á síðustu leikíð og kappinn skoraði strax í fyrsta leik. Í heildina lék hann þá 16 leiki og skoraði 7 mörk. Paul Hart núverandi stjóri liðsins sagði: ,,Daniel er leikmaður sem ég hef verið á eftir lengi. Hann er ungur, getur spilað í mörgum stöðum, er stór og fljótur svo ég tel að hann muni reynast okkuur vel."
