Daniel James skoraði í sínum fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni með Manchester United um síðustu helgi en hann kom til liðsins frá Swansea á 17 milljónir punda.
Í janúar síðastliðnum munaði litlu að Leeds myndi kaupa James frá Swansea. James fór í læknisskoðun hjá Leeds og mynd var tekin af honum með treyju félagsins.
Forráðamenn Swansea hættu hins vegar að svara símtölum Leeds rétt fyrir gluggalok og því varð ekkert úr undirskrift á samningi.
Allt þetta er sýnt í „Take Us Home" sem er heimildarmynd um síðasta tímabil hjá Leeds en myndin er í sýningu hjá Amazon.

„Ég er búinn að vera hérna í allan dag og allt er klárt maður.
Þeir vilja bara ekki skrifa undir," sagði James í símtali sem er sýnt í heimildarmyndinni.
Athugasemdir