Íslenska landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir var á skotskónum er Lyon vann Guingamp 4-0 í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Sara Björk gekk til liðs við Lyon í sumar eftir að hafa verið á mála hjá þýska félaginu Wolfsburg.
Hún hefur verið að glíma við meiðsli í byrjun tímabilsins en hún var ekki með í síðasta leik liðsins.
Sara var þó mætt inn í hópinn í kvöld en hún byrjaði á bekknum. Hún kom inná á 63. mínútu og skoraði aðeins tíu mínútum síðar.
Amel Majri skoraði fjórða markið og annað mark sitt í leiknum og 4-0 sigur niðurstaðan.
Lyon hefur unnið alla leiki sína á tímabilinu og er því með 18 stig á toppnum eftir fyrstu sex leikina.
73' GGGGGOOOOAAAAALLL ! @sarabjork18 vient tripler la mise avec une frappe limpide qui vient tromper Durand !
— OL Féminin (@OLfeminin) October 16, 2020
3-0 #OLEAG pic.twitter.com/4PxnEEPDwj
Athugasemdir