16.11.04 - 12:42
Elvar Geir Magnússon
Sævar Eyjólfsson í Þrótt (Staðfest)




Sóknarmaðurinn snöggi Sævar Eyjólfsson er genginn til liðs við Þróttara en hann kemur frá Haukum. Fótbolti.net sagði einmitt frá því í síðustu viku að Sævar væri á leið til Þróttar og hefur það nú komið á daginn. Þetta er mikil blóðtaka fyrir Hauka en spennandi verður að sjá hvernig Sævari gengur í úrvalsdeildinni næsta sumar.
Sævar er 26 ára framherji en hann hefur leikið með Haukum í Hafnarfirðinum síðustu þrjú tímabil, áður með Njarðvík. Hann var markahæsti leikmaður Hauka í sumar, skoraði átta mörk í 14 leikjum, en Haukar rétt björguðu sér frá falli á markatölu.
