Fotbolti.net
16.11.04 - 23:59
Hafliði Breiðfjörð

Dean Martin til ÍA (Staðfest)

Dean Martin í leik með KA í sumar

Dean Martin í leik með KA í sumar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dean Martin skrifaði í kvöld undir þriggja ára samning við ÍA og tekur samningurinn gildi eftir áramót. Þetta kemur fram á vefsíðu félagsins en Martin er 32 ára gamall og hefur leikið með KA undanfarin ár og yfirleitt farið utan á veturna og leikið í heimalandinu, Englandi. Hann hefur verið á mála hjá liðum eins og Stevenage Boro FC, Hong Kong og West Ham úti.
Dean spilaði áður með ÍA árið 1998 en þá gekk hann til liðs við félagið á miðju sumri er liðinu var stjórnað af Loga Ólafssyni. Þá spilaði hann 10 leiki og skoraði 2 mörk.

Hann hefur leikið með KA síðan árið 1995 að árinu 1998 undanskildu en í sumar lék hann 15 leiki í efstu deild og náði ekki að skora.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.