Fotbolti.net
17.01.10 - 15:22
Magnús Már Einarsson

Guðmundur Andri Bjarnason í Reyni Sandgerði (Staðfest)

Guðmundur Andri Bjarnason í Reyni Sandgerði (Staðfest)
Canon

Mynd: Austurglugginn/Gunnar

Reynir Sandgerði hefur fengið varnarmanninn Guðmund Andra Bjarnason til liðs við sig frá Fjarðabyggð en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Guðmundur Andri hefur leikið með Fjarðabyggð undanfarin tvö ár en áður lék hann með Grindavík í sex ár.

,,Það var í boði að vera áfram hjá Fjarðarbyggð en fyrir utan þá voru líka nokkur önnur lið sem höfðu samband,\" sagði Guðmundur Andri í viðtali á heimasíðu Reynis.

,,Ég ákvað hinsvegar að fara til Reynis því mér leist vel á verkefnið. Ég þekki líka til nokkra þarna í klúbbnum, Kekic og Sigurð Bjarna markmannsþjálfara sérstaklega frá tíma mínum í Grindavík.\"

Guðmundur Andri mun æfa með Fjarðabyggð þar til fyrsta mars en þá flytur hann og hefur æfingar með Reyni.

Heimild: Heimasíða Reynis

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.