Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 17. janúar 2020 17:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kristín Dís framlengir við Breiðablik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristín Dís Árnadóttir er búin að skrifa undir nýjan samning við Breiðablik sem gildir næstu þrjú keppnistímabil.

Kristín Dís var lykilmaður í hjarta varnarinnar hjá Blikum síðasta sumar og þótti standa sig afar vel í leikjum liðsins í Meistaradeild Evrópu.

Kristín á 100 leiki að baki fyrir meistaraflokk Breiðabliks þrátt fyrir að vera aðeins 20 ára gömul. Hún hefur sinnt lykilhlutverki hjá U19 og U17 landsliðum Íslands og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér.

Kristín er í námi í Bandaríkjunum og mun spila með háskólaliði Tennessee í vetur en kemur aftur til landsins í maí.

„Við hlökkum til að sjá Kristínu á vellinum í sumar og óskum henni til hamingju með samninginn," segir meðal annars í Facebook færslu hjá Breiðabliki.
Athugasemdir
banner
banner
banner