Tottenham náði í þrjú stig til Sheffield í dag og var það Tanguy Ndombele sem innsiglaði sigurinn með glæsimarki á 62. mínútu.
Ndombele fékk sendingu innfyrir vörnina en var með tvo varnarmenn í sér. Þá var boltinn á leið frá markinu og Frakkinn því ekki í skotfæri.
Einhvern veginn tókst honum þó að láta vaða á markið og gekk sú tilraun heldur betur vel. Knötturinn flaug yfir varnarmennina og markvörðinn áður en hann endaði í netinu.
Sjón er sögu ríkari og er hægt að sjá markið með að smella hér. Ndombele sneri ekki í áttina að markinu þegar hann setti fótinn í boltann.
Athugasemdir