Telma er markvörður sem uppalin er austur á fjörðum. Hún gekk í raðir Breiðabliks árið 2016 og hefur síðan verið lánuð til Grindavíkur, Hauka, Augnabliks og síðast FH á síðustu leiktíð.
Hún á enn eftir að leika keppnisleik með Blikum en hún berst um að verða aðalmarkvörður liðsins í sumar. Hún lék á sínum tíma 26 unglingalandsliðsleiki og var í síðasta mánuði í æfingahópi A-landsliðsins. Í dag sýnir hún á sér hina hliðina.
Hún á enn eftir að leika keppnisleik með Blikum en hún berst um að verða aðalmarkvörður liðsins í sumar. Hún lék á sínum tíma 26 unglingalandsliðsleiki og var í síðasta mánuði í æfingahópi A-landsliðsins. Í dag sýnir hún á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Telma Ívarsdóttir
Gælunafn:
Aldur: 22 ára í mars
Hjúskaparstaða: Í sambandi
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2014
Uppáhalds drykkur: Pepsi Max
Uppáhalds matsölustaður: XO og Rvkmeat
Hvernig bíl áttu: Golf
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Criminal Minds
Uppáhalds tónlistarmaður: Pop Smoke
Uppáhalds hlaðvarp: Ekkert
Fyndnasti Íslendingurinn: Ari Eldjárn
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Mars, jarðaber og lúxusdýfu
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Telma, tíminn þinn er 7:40 á morgun. Kveðja KPI
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Úff þessi er erfið, held ég verði bara að segja “aldrei segja aldrei”
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Eina sem mér dettur í hug akkúrat núna er hún Elín Metta
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Þorsteinn Halldórsson
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Hlín Eiríksdóttir, óþolandi góð.
Sætasti sigurinn: Þegar Breiðablik var bikarmeistari 2016
Mestu vonbrigðin: Tímabilið í fyrra
Uppáhalds lið í enska: Manchester United
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Elín Mettu
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Bergþóra Sól Ásmundsdóttir, leikmaður Breiðabliks
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Mágur minn, Kristófer Daði Garðarsson
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Kristjana Sigurz fær þennan heiður
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi:
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Það eru held ég bara allir í sambandi
Uppáhalds staður á Íslandi: Enginn staður betri en heima hjá mömmu og pabba á Neskaupstað
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Í fyrsta leiknum mínum í sumar með FH missti ég aðra linsuna mína eftir smá samstuð á 8. mín og spilaði allan fyrri hálfleikinn með eina linsu, fékk sem betur fer nýja linsu í hálfleik en ástæðan afhverju ég fékk hana ekki fyrr var útaf ég gleymdi snyrtitöskunni minni heima og kærastinn minn þurfti að keyra heim og ná í snyrtitöskuna fyrir mig. Það var ekkert grín að spila með eina linsu því ég sé mjög illa án þeirra þannig ég reyndi að halda öðru auganu lokuðu svo ég myndi sjá eitthvað
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei hef aldrei verið hjátrúarfull
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já, svona nánast öllum held ég
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Superfly
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Stærðfræði og Íslensku
Vandræðalegasta augnablik: Eina sem mér dettur í hug er þegar ég fékk klobba mark á mig í U17 landsleik fyrir nokkrum árum
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Kristjönu Sigurz, Birtu Georgs og Ásdísi Karen
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Léleg staðreynd en finn enga aðra en ég er fædd og uppalin á Neskaupstað
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Karítas Tómasdóttir, vissi voða lítið um hana þegar hún kom í Blix, hún er bara frábær leikmaður í alla staði
Hverju laugstu síðast: Átti að vera búin að lesa einhverja tíu kafla í skólanum og ég sagði auðvitað bara við kennarann að ég væri búin að lesa þessa kafla sem var svo sannarlega ekki rétt
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Finnst ekkert leiðinlegt þannig séð en nokkrar æfingar hjá Aroni styrktarþjálfara geta hins vegar verið smá leiðinlegar
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja:
Athugasemdir