Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   þri 17. mars 2026 13:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
'Ég er mættur til baka og það verða forréttindi að horfa á mig spila. Djuric er kominn til baka'
'Ég er mættur til baka og það verða forréttindi að horfa á mig spila. Djuric er kominn til baka'
Mynd: KA
Danijel og Hallgrímur Jónasson.
Danijel og Hallgrímur Jónasson.
Mynd: KA
Mynd: KA
'Fólk getur búist við sama Djuric og var alltaf'
'Fólk getur búist við sama Djuric og var alltaf'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danijel Dejan Djuric var í síðustu viku tilkynntur sem nýr leikmaður KA. Hann var keyptur frá króatíska félaginu NK Istra og skrifaði undir þriggja ára samning við KA.

Hann vann þrjá stóra titla sem leikmaður Víkings áður en hann hélt til Króatíu en þar voru tækifærin af skornum skammti. Danijel ræddi ákvörðunina að semja við KA. og ýmislegt annað, í viðtali við Fótbolta.net.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst

Allur pakkinn dró mig hingað
„Tilfinningin er rosalega góð, allt inni í mér segir mér að þetta verði geggjað gaman og gott. Ég sá stefnu KA, KA er geggjað félag og með geggjaðan þjálfara í Hadda. Ég var á klukkutíma fundi með honum og varð smá orðlaus hvernig hann setti hlutina fram, hann veit mjög mikið. Svo eru það leikmennirnir, Hallgrímur Mar, Rodri og allir þessir gæjar. Það voru rosaleg gæði, Hallgrímur Mar er töframaður, Rodri ískaldur á boltanum og Hans Viktor í hafsentinum - þetta eru geggjaðir gæjar. Allur pakkinn dró mig hingað og ég er himinlifandi að vera hérna."

Mun fara miklu lengra en KA
Danijel fer fögrum orðum um Hallgrím Jónasson, þjálfara KA. Leikmaðurinn segir að Haddi hafi komið sér mjög á óvart.

„Alltaf þegar hann kom gegn Víkingi þá var það í fimm manna vörn og varist. En núna skil ég af hverju. Hann kemur mér rosalega á óvart. Hann er topp- toppþjálfari og hann mun fara miklu lengra heldur en KA og ég held að hann fari út. Hann er miklu meiri pælari en ég hélt. Hann pælir ekki bara í fótboltalega partinum, heldur líka í mannlega partinum; hvernig mönnum líður og hvernig menn vilja vera. Það er allur pakkinn."

Sá hvernig Birni gekk í fyrra
Það var skemmtileg tilviljun að á meðan viðtalið var tekið var Haddi að hlaupa í hringi á Greifavellinum ásamt fleiri starfsmönnum KA.

En hvernig getur Danijel hjálpað KA?

„Eins og sást með Birni í fyrra, hvernig hann og Hallgrímur Mar og hann unnu saman. Það var geggjað. Þeir spiluðu í kirngum hvorn annan og um leið og tveir góðir leikmenn vinna saman þá kemur eitthvað sérstakt sem fólk í stúkunni á eftir að njóta ótrúlega mikið, þannig ég get ekki beðið eftir því að byrja."

Uppalinn á Blönduósi
Danijel þekkir til á Norðurlandi, er Blönduósingur. Faðir hans lék með Tindastóli og Hvöt á sínum tíma.

„Það var nostalgía að koma hingað í gær, kom alltaf hingað þegar ég var yngri. Mér líður eins og ég sé heima hérna, elska Norðurlandið og elska Brekkuna."

Mun færa lífinu lit
„Ég er mjög spenntur fyrir sumrinu, mér fannst deildin í fyrra smá leiðinleg. Ég get ekki beðið eftir því að koma til baka. Ég hef fengið skilaboð frá fólki að það sé ánægt að ég sé kominn til baka. Ég er mættur til baka og það verða forréttindi að horfa á mig spila. Djuric er kominn til baka," segir Danijel og brosir.

„Stuðningsmenn geta búist við smá lit í lífið; deildina, liðið og fótboltann. Fólk getur búist við sama Djuric og var alltaf. Ég get ekki beðið."

Hann segir að valið hafi staðið á milli Breiðabliks og KA og á endanum hafi KA orðið fyrir valinu. Hann ræðir meira um Breiðablik í spilaranum efst. Hann ræðir einnig um tímann í Króatíu, félagaskiptin sem gengu ekki upp til Serbíu, verðmiðann og Víking.

KA er stórveldið á Akureyri
Hvernig verður að spila á móti Þór í sumar?

„Það mun örugglega koma gífurlega á óvart og ég get ekki beðið eftir því. Það er þessi nágrannaslagur sem hefur ekki verið í langan tíma. Ég sé á samfélagsmiðlum að menn eru byrjaðir að kýtast. Ég get ekki beðið eftir þeim leikjum."
Árið 2023 var Danijel í hlaðvarpsviðtali hér á Fótbolti.net í þættinum Tiltalið. Þar sagði hann að Þór væri stórveldið á Akureyri.

„Nei, ég sé ekki eftir neinu. Maður gerir hluti af einhverri ástæðu, ég sé ekki eftir neinu. Eina sem ég segi er að KA er stórveldið á Akureyri," segir Danijel.

Slapp
banner