Carlo Ancelotti er tilbúinn að gera Moise Kean að mikilvægum leikmanni Everton á næstu leiktíð.
Ancelotti er í dag stjóri Everton en Kean er leikmaður liðsins og var lánaður til Paris Saint-Germain fyrir leiktíðina.
Þar hefur Kean staðið sig vel en hann hefur skorað 16 mörk á leiktíðinni fyrir lið í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Everton gæti skoðað það að selja Kean en Ancelotti er tilbúinn að gefa honum tækifæri á Goodison Park.
„Ég þarf ekki að sannfæra hann um að ver áfram hjá Everton. Hann er í láni og verður að koma til baka," sagði Ancelotti.
„Ef PSG vill fá hann þá þurfa þeir að opna viðræður. Við erum opnir fyrir því en ef ekkert gerist verður hann mikilvægur leikmaður Everton á næstu leiktíð."
Athugasemdir