17.05.04 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
Jaap Stam kominn til AC Milan (Staðfest)

Stam er kominn í AC Milan.


Stam er kominn í AC Milan.

Jaap Stam mun klæðast búningi AC Milan á næstu leiktíð en það hefur formlega verið staðfest. Milan gaf frá sér fréttatilkynningu í dag þar sem þetta kom fram. Stam hefur undanfarin ár leikið með Lazio en hann er 32 ára gamall.
Stam átti aðeins ár eftir af samningi sínum við Lazio og félagið var því ákveðið í að reyna að selja hann. Ekki var gefið upp hver kaupverð Milan er en mjög líklegt er að það sé í kringum sex milljónir.
