17.05.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Arnar Þór í Árborg (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Varnarmaðurinn Arnar Þór Úlfarsson er genginn í raðir Árborgar frá Pepsi-deildarliði Fylkis.
Arnar er 32 ára gamall reynslubolti sem hefur leikið nálægt 80 leiki fyrir uppeldisfélag sitt, Fylki, auk þess að hafa leikið með Selfyssingum og Aftureldingu í 1. og 2. deild.
Hann lék síðast með Fylkismönnum sumarið 2009 en skórnir hafa verið á hillunni síðan þá.
Auk Arnars Þórs fengu Árborgarar lánaða tvo efnilega leikmenn úr 2. flokki Selfoss, þá Þorstein Daníel Þorsteinsson og Markús Árna Vernharðsson. Þorsteinn var einnig lánaður til Árborgar í fyrra og lék þá sjö leiki með liðinu í 2. deildinni.