Fotbolti.net
17.05.12 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

Hin hliðin - Jón Gísli Ström (ÍR)

Hin hliðin - Jón Gísli Ström (ÍR)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Jón Gísli Ström er ungur leikmaður hjá ÍR sem var valinn í úrvalslið 1. umferðar 1. deildar karla. Hann er á elsta aldursári 2. flokks og hefur skorað 6 mörk í 39 leikjum fyrir meistaraflokks ÍR í deild og bikar.
Fullt nafn: Jón Gísli Ström.

Gælunafn sem þú þolir ekki: Gísli Jón, Drama, Sveipurinn.

Aldur: 19 ára.

Giftur / sambúð: Í föstu sambandi með stelpu sem heitir Lena Björk.

Börn: Nei ekki svo gott.

Kvöldmatur í gær: Íslensk kjötsúpa.

Uppáhalds matsölustaður: Caruso kemur sterkur inn.

Hvernig bíl áttu: WV Bora, oft kallaður Uxinn.

Besti sjónvarpsþáttur: Friends, BMS.

Uppáhalds hljómsveit: Hef aldrei náð að svara þessari spurningu, en Drake er í uppáhaldi eins og er, og svo auðvita Krissi Brúni.

Uppáhalds skemmtistaður: Vegamót, það er bara þannig.

Frægasti vinur þinn á Facebook: Verð að segja Kristmundur Axel, nálægt 5.000 vina múrnum!!

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: OkOK - Ekki merkilegra en það.

Hefurðu tekið dýfu innan teigs: Já það verður að viðurkennast.

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Leiknir. Held að enginn ÍR-ingur myndi skipta yfir í það félag og öfugt, “neighbours”

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Ætli það sé ekki Steven Lennon.

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Halldór Arnarsson á æfingu, “fínn gaur samt”

Sætasti sigurinn: 2-1 sigur á Leikni í fyrra, rafmögnuð stemming á vellinum gott skref í átt að halda okkur frá fallinu.

Mestu vonbrigðin: Að hafa tapa úrslitaleikunum við FH í 4. flokki og þegar Beckham fór frá MAN UTD.

Uppáhalds lið í enska: Manchester United, það er klárt.

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Bjarni Guðjónsson, “pabbinn”

Fyrsta verk ef þú yrðir formaður KSÍ: Fara beint og ná mér í VISA-Kortið sem þeir notuðu 2009, fara til útlanda og hafa svipaða ferð eins og um árið (Staðfest)

Efnilegasti knattspyrnumaður landsins: Stefán Þór Pálsson.

Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni: Björn Jónsson, síða hárið að skila stigum.

Fallegasta knattspyrnukonan: Jóna Kristín Hauksdóttir fær þann titil og Brynjar Benediktsson fær hrós einnig.

Besti íþróttalýsandinn: Gummi Ben, samt erfitt að segja ekki Höddi Maggi.

Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Andri Björn Sigurðsson er roslegur í þessum leik, einnig Sigurður Þór Arnarsson en hann gengur undir viðurnefninu „Pollurinn“

Uppáhalds staður á Íslandi: ÍR klefinn „klefa tjill“, Kiðjabergsvöllur.

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Ég var staddur á Norðurlandamóti í Noregi með U17 ára landsliðinu og við áttum Skotland í fyrsta leik, komumst snemma leiks yfir og leikurinn var nokkurn veginn í okkar höndum. Í seinni hálfleik kallaði þjálfarinn á mig og sagði að ég ætti að gera mig kláran. Ég peppaði mig alltof mikið upp því þegar ég var nýkominn inná þá var rifið mig niður og fyrsta sem ég geri er að taka góðan sprett á eftir Skotanum og tek tveggjafóta tæklingu beint aftan í hann. Ég fékk beint rautt aðsjálfsögðu. Gaman að upplifa sinn fyrsta unglingalandsleik þannig..

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: Á móti KR 14. janúar 2010 í Reykjavíkurmótinu.

Besta við að æfa fótbolta: Reitur, best í heimi.

Hvenær vaknarðu á daginn: 7:30, skólinn.

Íþróttamaður ársins 2012: Ef Gylfi heldur svona áfram þá er þetta engin spurning.

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Skák. Frægasta skák einvígi sögunnar. Þá tefldi Fisher gegn Boris Spassky og sigraði og var krýndur nýr heimsmeistari í skák. Það var rosalegur leikur.

Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik: Það mun vera KR - Þór á Laugardallsvelli í fyrra.

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Adi Zero og Nike Vapor.

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: kann ekki stakt orð í tungumálum. Málheftur, það er bara þannig.

Vandræðalegasta augnablik: Erfitt að segja.. ömurlegt svar en svona er þetta.

Skilaboð til Lars Lagerback: Eyjólfur Héðinsson að gera góða hluti með SonderjyskE í Danmörku. Og hvort hann væri ekki til að koma með mér og VISA-kortinu til útlanda?

Viltu opinbera leyndarmál að lokum: Við strákarnir úr ÍR fórum í æfingarferð til Portúgals í fyrra. Eitt kvöldið vorum við uppá herbergi að spila Fifa í hinu mesta sakleysi; ég, Árni Freyr og Sindri. Einhvern veginn atvikaðist það að við vorum allir naktir að spila, eins og gengur og gerist í svona æfingarferð þar sem 25 karlmenn eru á hóteli. Þá réðst Árni Freyr aftan að mér og hélt mér í einhverskonar „nauðgunarstöðu“. Ég er bara ekki sami maður og ég var eftir þessa ferð og er enn að bíða eftir afsökunarbeiðni. Hann harðneitar fyrir þetta og vil ég biðja unga Fylkisstráka að passa sig.
Hin hliðin - Jón Gísli Ström (ÍR)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Hin hliðin - Jón Gísli Ström (ÍR)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Hin hliðin - Jón Gísli Ström (ÍR)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.