17.05.12 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Igor Stimac tekur við Króatíu eftir EM (Staðfest)

Igor Stimac í baráttunni

Mynd: Getty Images

Igor Stimac í baráttunni

Mynd: Getty Images
Igor Stimac tekur við króatíska landsliðinu eftir Evrópumótið í Póllandi og Úkraínu í sumar, en þetta staðfesti Simac við fjölmiðla í gær.
Slaven Bilic fer með króatíska landsliðið á Evrópumótið í sumar, en lætur síðan af störfum þar sem hann hefur tekið starfi hjá rússneska félaginu Lokomotiv Moskvu.
Króatar voru ekki lengi að finna eftirmann Bilic, en það verður Igor Stimac og þá hefur króatíska knattspyrnusambandið einnig breytt um forseta, en það verður fyrrum framherjinn Davor Suker.
Margir ættu að kannast við Stimac, en hann lék árum áður hjá enska félaginu West Ham United og spilaði þar frá árunum 1999-2001. Hann lék þá 53 landsleiki fyrir Króatíu og skoraði tvö mörk.

Heimild: Sky