17.05.12 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Rene Adler til Hamburg á frjálsri sölu (Staðfest)

Rene Adler tekur flugferð.

Mynd: Getty Images

Rene Adler tekur flugferð.

Mynd: Getty Images

Hamburg hefur gengið frá kaupunum á markverðinum Rene Adler.
Adler kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Bayer Leverkusen rann út í lok leiktíðar.
Hinn 27 ára gamli landsliðsmarkvörður þýskalands hefur átt við talsverð meiðsli að stríða síðustu tvö ár, en hann skrifaði undir fimm ára samning.
Hamburg vonast til að meiðsli hans muni senn taka enda, en Adler hefur sannað sig sem einn besti markvörður Þýskalands þegar hann er heill.
Hann á að baki 10 landsleiki fyrir þjóð sína og lék 138 leiki með Leverkusen á ferli sínum þar.

Heimild: Sky Sports