Það átti viðbjóðslegt atvik sér stað eftir að Nottingham Forest lagði Sheffield United að velli í undanúrslitaleik umspilsins um sæti í ensku úrvalsdeildinni fyrr í kvöld.
Stuðningsmenn Nottingham sprettu á völlinn til að fagna með leikmönnum eftir síðustu vítaspyrnuna á meðan leikmenn Sheffield týndust af vellinum niðurlútir.
Ekki var búist við að hætta myndi stafa af stuðningsmönnum Nottingham, sem voru himinlifandi með að komast í úrslitaleikinn, en einn áhorfandi varð að vera svarti sauðurinn og á væntanlega yfir höfði sér fangelsisvist fyrir fólskulega líkamsárás.
Billy Sharp var hinn slakasti á hliðarlínunni þar til fullorðinn maður spretti að honum og skallaði illa á ferð. Sharp hrundi til jarðar alblóðugur og er þetta lögreglumál. Atvikið má sjá hér fyrir neðan, eftir um 20 sekúndur af myndbandinu.
Sharp lék eitt tímabil á láni hjá Nottingham Forest 2012-13 og skoraði þá 10 mörk í 39 deildarleikjum.
Nottingham Forest vann í vítaspyrnukeppni eftir magnaðan leik þar sem Brice Samba var hetja heimamanna með þrjár varðar vítaspyrnur í vítaspyrnukeppninni.