Fotbolti.net
17.05.22 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Keflavík samdi við fyrirliða 2. flokks hjá Fram (Staðfest)

Keflavík samdi við fyrirliða 2. flokks hjá Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Keflavík

Undir lok félagaskiptagluggans fékk Keflavík Dag Margeirsson í sínar raðir. Dagur er fæddur árið 2003 og kom til félagsins frá Fram.

Dagur getur bæði spilað í vörninni sem og á miðjunni. Undir lok síðasta tímabils og í upphafi tímabilsins í ár bara Dagur fyrirliðabandið hjá liði 2. flokks Fram.
„Dagur Margeirsson hefur gengið til liðs við okkur frá Fram. Dagur er fæddur árið 2003 og getur leikið í stöðu miðvarðar og miðjumanns. Hann er ungur og efnilegur og kemur til með að auka breidd leikmannahópsins hjá okkur. Við hlökkum til að sjá meira af Degi í Keflavík," segir í tilkynningu Keflavíkur.

Samningur Dags við Keflavík gildir út tímabilið 2024.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.