17.06.12 - 21:00
Brynjar Ingi Erluson
Del Bosque framlengdi við spænska landsliðið (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Vicente Del Bosque, þjálfari spænska landsliðsins, hefur skrifað undir tveggja ára framlengingu á samning sínum.
Del Bosque, sem er 61 árs gamall tók við Spánverjum eftir Evrópumótið árið 2008 og stýrði liðinu til sigurs á HM í Suður-Afríku í kjölfarið.
Það hefur lengi verið rætt um að hann ætlaði sér að skrifa undir framlengingu á samning sínum, en það dróst á langinn. Hann hefur hinsvegar klárað sín mál núna og gerði hann tveggja ára samning.
Hann mun því stýra liðinu á HM í Brasilíu, sem fer fram árið 2014 og getur hann því varið titilinn með liðinu.

Heimild: Sports Illustrated