Fotbolti.net
17.06.25 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sarri hafnaði félagi í Sádi-Arabíu - Elti hjartað en ekki peningana

Sarri hafnaði félagi í Sádi-Arabíu - Elti hjartað en ekki peningana
Canon

Mynd: EPA

Maurizio Sarri var aftur ráðinn stjóri Lazio fyrr í þessum mánuði.

Sarri hætti með liðið fyrir rúmu ári síðan en hann greindi frá því að hann hafi hafnað félagið frá Sádi-Arabíu þar sem peningarnir skipta ekki öllu máli.
„Ég var í viðræðum við félag frá Sádi-Arabíu en ég hefði getað þénað meira á einum mánuði en ég hefði gert á heilu ári hjá Lazio," sagði Sarri.

„Ég hef alltaf sagt að ég myndi elta hjartað, ekki peningana. Ég hef ekki áhuga á því hversu mikið þeir voru að bjóða. Ég hef alltaf verið í fótbolta af ástríðu, ég myndi ekki vilja byrja að gera þetta fyrir peningana núna."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.