Freyr tekinn við Rosenborg (Staðfest)

Freyr er orðinn þjálfari Rosenborgar í Þrándheimi.

Mynd: EPA

Norska stórveldið Rosenborg í Þrándheimi hefur staðfest ráðningu á Frey Alexanderssyni sem nýjum aðalþjálfara félagsins. Freyr skrifaði undir samning til 2029 og mun formlega vera kynntur á fréttamannafundi á föstudag.
„Ég er virkilega stoltur og þakklátur fyrir þann mikla áhuga sem ég fékk frá stjórn félagsins. Okkar viðræður hafa verið hreinskilnar, opnar og heiðarlegar. Ég hef mikla trú á því að saman getum við komið sigursælasta félagi Noregs þangað sem það á heima," segir Freyr við heimasíðu félagsins.

TENGT EFNI
Stórhissa á fréttunum um Freysa og Rosenborg
Rosenborg er sögulega séð stærsta félagið í Noregi en hefur verið í talsverðu brasi undanfarin misseri. Rosenborg er þessa stundina í næst neðsta sæti norsku úrvalsdeildinni.
„Þegar við vinnum úr stöðu liðsins í dag þurfum við að sýna hugrekki og byggja upp góðan grunn fyrir framtíð félagsins. Við þurfum að verða lið sem allir hjá Rosenborg eru stoltur af. Það er mikill heiður að fá þessa ábyrgð og ég er fullur tilhlökkunar."
Freyr var í upphafi mánaðarins látinn fara frá Brann eftir að hafa gert þar flotta hluti. Hann hefur áður stýrt Kortrijk í Belgíu, Lyngby í Danmörku, uppeldisfélagi sínu Leikni í Breiðholti, íslenska kvennalandsliðinu, var aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins og aðstoðarmaður Heimis Hallgrímssonar hjá Al-Arabi í Katar.