Fotbolti.net
17.08.04 - 05:56
Elvar Geir Magnússon

Oscar Lopez til Lazio (Staðfest)

Oscar Lopez til Lazio (Staðfest)
Canon
Varnarmaðurinn Oscar Lopez er kominn í ítalska boltann frá liði Barcelona. Lopez er 24 ára og hefur skrifað undir samning við Lazio. Hann lék einungis sex deildarleiki fyrir Börsunga á síðasta leiktímabili en vonast eftir því að fá að sprikla meira á Ítalíu.
"Það er mér mikill heiður að fá að klæðast búningi Lazio. Sería-A er ein sterkasta deildarkeppnin í heiminum. sagði Lopez. "Ég get spilað bæði sem hægri og vinstri bakvörður, jafnvel sem miðvörður ef á þarf að halda. Það verður bara þjálfarinn sem tekur ákvörðun um hvar ég spila."

Af öðrum félagaskiptum á Ítalíu er að frétta að Chievo hefur fengið Marco Esposito sem var leystur undan samningi við Ancona. Þessi 24 ára varnarmaður spilaði 12 leiki í Seríu-A síðasta tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.