17.08.04 - 12:13
Hafliði Breiðfjörð
Nunez til Liverpool (Staðfest)




Liverpool hafa gengið frá kaupum á spænska kantmanninum Antonio Nunez frá Real Madrid og gert við hann þriggja ára samning. Nunez sem er 25 ára gamall æfði með Liverpool í dag eftir að hafa komist í gegnum læknisskoðun. Hann hóf feril sinn hjá San Fererico áður en hann fór til Real. Líklegt er að hann verði í leikmannahóp Liverpool sem mætir Manchester City á laugardag.
