Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 17. ágúst 2019 17:42
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Southampton og Liverpool: Mane bestur
Mynd: Getty Images
Southampton fékk Liverpool í heimsókn í enska boltanum í dag og var 0-1 undir í leikhlé þrátt fyrir góða frammistöðu.

Sadio Mane, maður leiksins, skoraði rétt fyrir leikhlé og lagði svo upp fyrir Roberto Firmino í seinni hálfleik. Hann skoraði laglegt mark og undirbúningurinn fyrir Firmino var frábær þar sem hann vann boltann hátt uppi á vellinum.

Alex Oxlade-Chamberlain, Mohamed Salah, Virgil van Dijk og Andy Robertson fengu fínar einkunnir frá Sky rétt eins og Firmino. Mane var eini leikmaður vallarins sem fékk 8.

Joel Matip var versti maður Liverpool og þá fengu þrír byrjunarliðsmenn Southampton einnig 5 í einkunn. Varnarmennirnir Jan Bednarek og Maya Yoshida þóttu ekki góðir sem og sóknarmaðurinn Che Adams.

Danny Ings, fyrrum leikmaður Liverpool, kom af bekknum og skoraði eina mark Southampton með góðri pressu á Adrian sem sparkaði boltanum í hann og í netið. Þeir fá báðir 6 í einkunn, enda átti Adrian góðar vörslur í leiknum.

Southampton: Gunn (7), Valery (7), Bednarek (5), Vestergaard (6), Yoshida (5), Betrand (6), Hojbjerg (6), Ward-Prowse (6), Romeu (7), Redmond (7), Adams (5).
Varamenn: Ings (6), Armstrong (5), Djenepo (6).

Liverpool: Adrian (6), Alexander-Arnold (6), Matip (5), Van Dijk (7), Robertson (7), Milner (6), Wijnaldum (6), Oxlade-Chamberlain (7), Salah (7), Firmino (7), Mane (8).
Varamenn: Fabinho (6), Origi (6).
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner